Augljóslega erú allir sammála því að þessi brandari er frekar dapur.
En hvað er að hjá ykkur sem gefið álit ykkar á þessum brandara?
Álit ENERGI á greininni:“Lemdu þig þanngað til að þú deyrð!!!!!!”
Hvað er að þér Energi? OK ég get verið sammála því að brandarinn sé með þeim allra verstu sem ég hef lesi hérna á Huga en hvað á svona svar að þýða?
Álit ZeroG gengur ennþá lengra.
Álit ZeroG á greininni: “það ætti að hengja þig, eitra fyrir þeir, skjóta þig og keyra yfir þig ef þú póstar svona rugli aftur…”
Það er mín skoðun að þeir sem pósta svona hlutum hérna á Huga eiga að fá refsistig. Þetta á ekki að viðgangast. Deno greyið er að senda inn brandara sem fæst samþykktur og uppsker svona svör. Þetta er útí hött!
Refsistig á Energi og ZeroG fyrir ógeðfeld og óviðeigandi svör.
Xavie