Tölvan er karlkyns af því að:
* Til þess að ná athyglinni þarf að kveikja á honum.
* Hann er fullur af upplýsingum, en hefur ekkert hugmyndaflug.
* Hann á að vera til hjálpar, en er helminginn af tímanum til vandræða.
* Um leið og maður hefur náð sér í einn kemst maður að því, að með smá bið hefði maður fengið betra módel.
Tölvan er kvenkyns af því að:
* Enginn, nema sá sem skapaði hana, skilur hennar “lógík”.
* Tjáningarformið sem hún notar við “sína líka” er óskiljanlegt.
* Hinn minnsti galli geymist í undirmeðvitundinni og er dreginn fram þegar verst gegnir.
* Um leið og maður hefur náð sér í eina þá uppgötvar maður að helmingurinn af laununum fer í að kaupa aukabúnað.