Það var einu sinni maður sem átti heima á þriðju hæð í blokk.
Einu sinni kom hann fullur inn í húsið. Þá sér hann krókódíl sem segir: Fullur! Maðurinn verður reiður og sparkar í krókódílinn og hleypur upp á aðra hæð. Þar er krókódíllinn í ganginum og segir: Fullur! Nú verður maðurinn mjög reiður. Hann stingur hendinni á sér inn í krókódílinn, tekur í halann og rykkir í þannig að krókódíllinn snyst við. Svo fer hann upp á þriðju hæð. En þegar hann ætlar að fara inn sér hann að krókódíllinn liggur fyrir framan dyrnar hjá honum og segir: Rulluf!