Það þarf að vera pláss fyrir alla.
2. desember
Til allra starfsmanna:
Það er mér mikil ánægja að tilkynna að jólahlaðborð fyrirtækisins,
julefesten, verður haldin á Steikhúsi Argentína þann 20 desember.
Jólaskreytingar verða komnar á sinn stað og lítil hljómsveit mun spila
vinalega og velþekkta jólasöngva. Aðstoðarforstjórinn kemur og leikur
jólasveininn og hann ætlar líka að kveikja á jólatrénu. Þið megið koma með
jólagjafir en þær mega ekki kosta meira en 200 krónur.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar friðar á aðventu.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi

3. desember
Til allra starfsmanna:
Það var ekki meiningin með tilkynningunni í gær að móðga tyrknesku
vinnufélagana okkar. Við vitum að helgidagarnir þeirra eru ekki alveg
samstæðir okkar. Þess vegna köllum við jólahlaðborðið framvegis
árslokaveislu. Af þessum ástæðum verður ekkert jólatré og ekki
jólasöngvar.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar góðra stunda.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi

7.desember
Til allra starfsmanna
Félagi í Anonyme Alkoholikere, AA, sem ekki vill láta nafns síns getið af
eðlilegum ástæðum, krefst þess að á árslokaveislunni verði þurrt borð. Með
gleði get ég sagt að það verður orðið við þessum óskum en vil um leið
benda á að þurrkinn eftir veisluna get ég ekki ábyrgst. Þar að auki verða
ekki gefnar jólagjafir því verkalýðsfélagið hefur mótmælt og telur 200
krónur allt of háa upphæð í jólagjafir.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi.

9. desember
Til allra starfsmanna
Mér heppnaðist að fá borð langt frá hlaðborðinu fyrir félaga okkar úr
megrunarklúbbi fyrirtækisins. Svo fékk ég líka borð fyrir alla ólétta rétt
hjá salernisdyrunum. Hommar sitja hlið við hlið. Lesbiur þurfa ekki að
sitja við hliðina á hommunum, þær fá sér borð. Að sjálfsögðu fá hommar og
lesbiur blómaskreytingu á borðin sín.
ERUÐ ÞIÐ NÚ ÁNÆGÐ…EÐA HVAÐ?
Tina Johansen
fulltrúi á geðveikradeildinni í starfsmannahaldi

10. desember
Til allra starfsmanna
Að sjálfsögðu tökum við tillit til þeirra sem ekki reykja. Teppi verður
notað til að skipta veislusalnum í tvær deildir. Möguleiki á að hafa
reyklaust fólk í tjaldi fyrir utan veitingahúsið.
Tina Johansen
fulltrúi í starfsmannahaldi fyrir undirokaða

14. desember
Til allra starfsmanna
Grænmetisætur! Ég beið nú bara eftir að heyra frá ykkur. Mér er svo
innilega, alveg skít sama hvort veislan passar fyrir ykkur eða ekki. Við
förum á Steikhúsið. Mín vegna getið þið farið til Mánans 20.desember til
að sitja sem lengs frá dauða-grillinu sem þið mögulega getið. Njótið, for
helvede, saladbarsins og étið ykkar hráu tómata. Og munið að tómatar hafa
líka tilfinningar. Þeir æpa þegar maður sker í þá, ég hef sjálf heyrt það.
Jæja svín, þarna fenguð þið á baukinn!
Ég óska öllum hvínandi góðra jóla, drekkið ykkur drullu-full, svo þið
farið í kóma!
Kveðja frá “Bitchen” á þriðju hæðinni.

Til allra starfsmanna
Ég er viss um að ég tala fyrir hönd okkar allra, þegar ég óska Tine
Johansen góðs bata. Það verður metið við ykkur ef þið sendið henni kort
með góðum óskum á Geðdeildina. Stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að það
verður ekki nein árslokaveisla eða jólahlaðborð. Þið megið taka ykkur frí
allan daginn þann 20. desember á fyrirtækisins kostnað.
Gleðileg jól!
Frederik Lindstrøm
starfsmannastjóri