Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem einn fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og dapur. “Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi” sagði hann og horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna.
“Eina von ástvinar ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð hefur ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er jafnframt eina vonin í þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni en þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann”. Ættingjarnir sátu hljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir dálítinn tíma spurði einn
þeirra. “Hvað kostar heili?” Læknirinn svaraði strax. “Karlmannsheili kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað og fimmtíu þúsund”. Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en karlmennirnir forðuðust að horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki hamið forvitni sína og spurði þeirrar spurningar sem alla langaði að spyrja að. “Af hverju er karlmannsheilinn svona mikið dýrari”? Læknirinn brosti umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði þetta fyrir öllum hópnum. “Þetta er bara þetta venjulega verð sem sett er upp, við getum ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru notaðir”!!! SENDIÐ ÞETTA TIL ÞEIRRA GÁFUÐU KVENNA SEM ÞURFA Á HLÁTRI AÐ HALDA OG ÞEIRRA KARLMANNA SEM ÞIÐ HALDIÐ AÐ GETI HÖNDLAÐ ÞETTA!!!!