Hvers vegna eru fílar með litlar grænar húfur?
Til að sjást ekki þegar þeir læðast um á golfvöllum.

Hvers vegna eru fílar í söndulum á ströndinni?
Til að sökkva ekki í sandinn.

Hvers vegna eru fílar í bláum íþróttaskóm?
Hvítir skór skitna svo fljótt.

Hvers vegna halda fílar sig í stórum hjörðum?
Til þess að fá magnafslátt af bláum íþróttaskóm.

Hvers vegna láta fílar sig fljóta á bakinu?
Til að bleyta ekki íþróttaskóna sína.

Hvað er það sem er klomp, klomp, klomp, skvamp, klomp, klomp, klomp, skvamp?
Fíll í blautum íþróttaskóm.

Hvers vegna mála fílar sig í ýmsum litum?
Svo þeir geti falið sig í vaxlitakössum.

Hvers vegna mála fílar neglurnar með grænu naglalakki?
Til þess að fela sig í grænu baununum.

Hvers vegna mála fílar neglurnar gular, grænar og appelsínugular?
Til þess að fela sig í smartís sælgætisboxum.

Hvers vegna mála fílar sólana gula?
Til þess að fela sig á hvolfi í sinnepsdósum.

Hefur þú nokkurn tímann séð fíl í sinnepsdós?
Sko, þetta virkar.