lífshættulegum sjúkdómi, lélegum einkunnum á lokaprófum, áralöngum
sveindómi, hræðslu við að vera rænt af mannræningjum og líflátinn
með
raflosti í endaþarm, og sektarkennd yfir því að senda ekki áfram 50
billjón keðjubréf sem ég hef fengið send frá fólki sem trúir því
virkilega að ef maður sendir þau áfram, þá muni aumingja litla sex
ára telpan í Arkansas, með brjóstið á enninu, safna nægum fjármunum
til að láta fjarlægja það áður en rauðhálsarnir foreldrar hennar
selja
hana í viðundrasýningu sem ferðast um landið vítt og breitt.
Trúir þú virkilega að Bill Gates ætli sér að gefa þér og öllum
öðrum
sem senda áfram tölvupóstinn “hans” 1000 dollara? Hversu mikill
hálfviti ertu? Úúúúúú, sjáðu þetta! Ef ég skruna niður þessa síðu og
óska mér, þá fæ ég drátt hjá öllum Playboy stelpunum sem eru í
nýjasta
tölublaðinu! Þvílíkt og annað eins kjaftæði. Sem sagt, þessi
skilaboð
eru eitt FUCKYOU til allra þeirra sem hafa ekkert betra að
gera en að senda mér heimskuleg keðjubréf í tölvupósti
Kannski
munu vondu keðjubréfaálfarnir koma heim til mín og misþyrma mér í
boruna á meðan ég sef, fyrir það að hafa ekki haldið áfram keðjunni
sem Jesús kom af stað árið 5 e.K. og kom til Bandaríkjanna í fórum
dvergvaxinna pílagríma um borð í Mayflower og ef það lifir af til
ársins 2000 þá kemst að í Heimsmetabók Guinness fyrir lengstu
óslitnu
hrinu af blygðunarlausri heimsku. Fari þeir til andskotans.
Ef þú ætlar að senda eitthvað áfram, sendu mér þá að minnsta kosti
eitthvað sem er ofurlítið skondið. Ég er búinn að sjá allar þessar
”sendu þetta áfram til 50 bestu vina þinna, og þessi aumingjans,
skammarlega afsökun fyrir manneskju mun einhvern veginn fá fimmkall
frá einhverri almáttugri veru“ tölvupóstsendingar u.þ.b. 90 sinnum.
Mér er alveg skítsama. Reyndu að sýna vott af skynsemi og
hugsa um hvað þú ert í raun að afreka með þessu öllu saman. Allar
líkur eru á að þú sért aðeins að auka á þínar eigin óvinsældir.
FJÓRAR GRUNNTEGUNDIR KEÐJUBRÉFA: KEÐJUBRÉF - Tegund 1:
skrunaðu niður) Óskaðu þér!!!
Nei, svona, í alvöru, óskaðu
þér!!! Slappaðu aðeins af,
hún
fer aldrei út með þér!!! Óskaðu þér einhvers annars!!!
Ekki þetta, öfugugginn þinn!!!
Ertu ekkert að þreytast í puttanum?
HÆTTU!!!! Var þetta
ekki
gaman? :) Ég vona að þú hafir óskað þér einhvers skemmtilegs. :)
Jæja, til að láta þig fá samviskubit, þá ætla ég að segja þér
eftirfarandi. Til að byrja með, ef þú ekki sendir þetta til 5096
manns innan fimm sekúndna, verður þér nauðgað af brjálaðri geit og
hent fram af hárri byggingu ofan í mykjuhaug. Þetta er satt!
Vegna þess að ÞETTA bréf er ekki eins og öll gervibréfin, ÞETTA er
ALVÖRU!! Alveg satt!!! Svona virkar þetta: Sendu þetta áfram á
einn einstakling: Einn einstaklingur verður fúll út í þig fyrir að
senda honum heimskulegt keðjubréf. Sendu þetta áfram á 2-5
manns:
2-5 manns verða fúlir út í þig fyrir að senda þeim heimskulegt
keðjubréf. Sendu þetta áfram á 5-10 manns: 5-10 manns verða
fúlir
út í þig fyrir að senda þeim heimskulegt keðjubréf og gætu sameinast
um að stytta þér aldur. Sendu þetta áfram á 10-20 manns:
10-20
manns verða fúlir út í þig fyrir að senda þeim heimskulegt keðjubréf
og munu sprengja upp húsið þitt. Takk!!!! Gangi þér vel!!!
KEÐJUBRÉF - Tegund 2: Halló, og takk fyrir að lesa þetta bréf.
Sjáðu til, um er að ræða ! lítinn, sveltandi dreng í
Baklaliviatatlaglooshen sem er handalaus, fótalaus, munaðarlaus og
geitalaus. Lífi þessa drengs er hægt að bjarga, því í hvert sinn sem
þú sendir þetta áfram, verður einn dollari gefinn í ”Litli
sveltandi,
fótalausi, handalausi og geitalausi drengurinn frá
Baklaliviatatlaglooshen"-sjóðinn. Já og mundu líka að við höfum
enga aðferð til að telja tölvupóstinn sem sendur er og þetta er allt
saman grábölvað kjaftæði. Svo láttu verða af því, réttu út
hjálparhönd. Sendu þetta til fimm manns á næstu 47 sekúndum.
Ó já, smá áminning - ef þú sendir þetta óvart til fjögurra eða sex
einstaklinga, munt þú deyja samstundis. Takk aftur!!
KEÐJUBRÉF - Tegund 3: Hæ hæ!! Þetta keðjubréf hefur verið til síðan
1897. Þetta er alveg ótrúlegt þar sem tölvupóstur var ekki til í þá
daga og örugglega ekki eins mikið af brjóstumkennanlegum
drullusokkum
sem höfðu ekkert betra við tímann að gera. Og svona virkar þetta:
Sendu þetta áfram á 15.067 manns á næstu sjö mínútum eða eitthvað
hræðilegt mun koma fyrir þig, eins og til dæmis:
Stórfurðuleg
hryllingssaga #1 Miranda Pinsley var að ganga heim úr skólanum á
laugardegi. Hún hafði stuttu áður fengið þennan tölvupóst og hunsað
hann. Skyndilega hnaut hún um skemmd í gangstéttinni, datt ofan í
ræsi, gusaðist eftir holræsakerfinu í kúkaflóði og flaug að lokum
fram af fossi. Ekki einasta lyktaði hún illa, heldur dó hún líka.
Þetta Gæti Komið Fyrir Þig!!! Stórfurðuleg hryllingssaga #2
Dexter Bip, 13 ára drengur, fékk keðjubréf í tölvupósti og hunsaði
það. Seinna þann dag varð hann fyrir bíl og sömuleiðis kærastinn
hans
(hey, sumir sveiflast í þá áttina). Þeir dóu báðir og fóru til
helvítis og voru dæmdir til að borða yndislega kettlinga á hverjum
degi um alla eilífð. Þetta Gæti Líka Komið Fyrir Þig!!! Mundu að þú
gætir endað eins og Pinsley og Bip. Sendu bara þetta bréf á alla
lúseravini þína og allt verður í stakasta lagi. ! KEÐJ
UBRÉF - Tegund 4: Eins og þér sé ekki sama, þá er hérna ljóð sem ég
samdi. Sendu það til allra vina þinna. Vinir. Vinur er
einhver
sem er alltaf við hlið þér. Vinur er einhver sem líkar við þig þó
það
sé skítalykt af þér og andremman út úr þér sé eins og þú hafir verið
að borða kattamat. Vinur er einhver sem líkar við þig þó þú sért
jafn
ljótur og hattur fullur af rassgötum. Vinur er einhver sem þrífur
þig
eftir að þú ert búinn að gera í þig. Vinur er einhver sem er hjá þér
alla nóttina á meðan þú grætur yfir ömurlegu lífi þínu. Vinur er
einhver sem þykist líka við þig þó hann vilji frekar að þér sé
nauðgað
af geðveikum simpönsum og síðan kastað fyrir óða hunda. Vinur er
einhver sem þrífur klósettið þitt, ryksugar og tekur svo við
ávísuninni
og fer og talar ekki mikla ensku… nei, fyrirgefðu, það
er
húshjálpin.
Vinur er einhver sem sendir þér keðjubréf af því að hann
vill að óskin
hans um að verða ríkur rætist.
Sendu þetta nú
áfram! Ef þú gerir það ekki muntu aldrei stunda kynlíf framar.
Hver er svo punkturinn með þessu öllu saman? Ef þú færð
keðjubréf sem hótar því að skilja þig eftir dráttarlausan og
lánlausan
það sem eftir er lífs þíns hentu því þá. Ef það er fyndið skaltu
senda það áfram. Ekki vera að pirra fólk með því að láta það fá
samviskubit yfir tannlausum holdsveikisjúklingi frá Botswana, sem
hefur verið bundinn við dauðan fíl í 27 ár, og hans eina von er
túkallinn sem hann fær ef þú sendir þetta bréf áfram, annars endar
þú
eins og Miranda. Ekki satt? Sendu þetta nú áfram til allra
sem
þú þekkir, annars þarftu að sjá mig nakinn! Dennis Leary
Have a nice day