Þegar þér líður illa á vinnustað.

Ef vinnudagurinn hefur verið hræðilegur, prófaðu þá þetta:

Farðu í apótek á leiðinni heim og kauptu Johnson & Johnson hitamæli, enga aðra tegund.
Þegar þú ert komin/n heim lokaðu þá að þér, dragðu gluggatjöldin fyrir og taktu símann úr sambandi.
Farðu í mjög þægileg föt, t.d. íþróttagalla, og leggstu upp í rúmið þitt. Opnaðu pakkann og settu
mælinn varlega á náttborðið. Taktu bæklinginn sem fylgir og lestu hann. Þú munt sjá að neðst stendur
með litlum stöfum: Allir endaþarmsmælar frá Johnson & Johnson fyrirtækinu eru persónulega prófaðir.
Lokaðu nú augunum og segðu upphátt: “Ég gleðst af öllu hjarta yfir því að ég vinn ekki á prófanadeildinni
hjá Johnson & Johnson fyrirtækinu.”
Endurtaktu þetta fjórum sinnum.
Hafðu það svo gott og mundu að það er alltaf einhver sem er í verra starfi en þú.