Síðustu orðin (copy paste
Ég slæ örugglega heimsmet ef mér tekst þetta.
Ég skal teygja mig og reyna að ná úrinu þínu undan færibandinu.
Nei vá, rosalega ertu með ýkt krúsílegt tattú.
(Í Harlem) Spyrjum körfuboltastrákana þarna til vegar.
Þetta þolir eld.
Nei nei, hann er örugglega í dvala.
Hvað gerir þessi takki?
Ég er að gera framkvæma borgaralega handtöku!
Þú ert mannæta segirðu …
Þetta er örugglega bara eitthvað útbrot.
Ertu viss um að þú hafir tekið rafmagnið af?
Já, það var ég sem átti úrslita atkvæðið í kviðdómnum, hvað með
það?
Nei, það er ekki laus reim á skónum mínum.
Það er örugglega einn á móti milljón að það gerist.
Hvað segirðu, beygja mig hvað?
Hvað áttu við með, “I'll be back”?
Tosa í pinnann, og telja uppá hvað sagðirðu?
Hvaða vír átti ég aftur að klippa?
Hvar ætli mömmu-björninn sé?
Engar áhyggjur, ég sá þetta gert í sjónvarpinu.
Mmmm, þetta eru ekkert smá góðir sveppir.
Ok, ég skal halda, og þú kveikir á þræðinum.
Hvað er þessi prestur að gera hérna?
Settu þetta varlega frá þér.
Hve oft á ég að segja þér þetta, rottueitur drepur bara rottur.
Ég vona að þeir tali ensku.
Ok þá, ég skal fara á undan fyrst þú þorir ekki.
Er ristabrauðið þitt fast ofan í … ég get reddað því.
Já ég er viss, þetta þolir okkur báða.
Fyndið, þú ert með fæðingarblett sem lítur út eins og 999.
Það er nú eitthvað skrítið bragð af þessu.
Góður hundur …
Blessaður, ég get gert þetta með bundið fyrir augun.
Jæja, við erum allaveganna komin þetta langt.
Þetta var eitthvað skrítið …
Hei, þetta er ekki fiðla!
Láttu ekki svona, þú ferð ekki að berja mann með gleraugu.
Ok, en þetta er í síðasta skipti sem ég geri þetta.
Ekki vera svona hjátrúarfullur.
Ef þér fannst þetta flott, sjáðu þá ÞETTA!
Þessi pláhneta er með mjög svipað andrúmsloft og jörðin, sjáðu
bara.
Vertu ekkert að taka þetta úr sambandi, ég verð enga stund að
laga þetta.
En hvað gerist ef ég læt þessa tvo víra sne………..
Engar áhyggjur, hún er ekki hlaðin.
Treystu mér, ég veit hvað ég er að gera.
Það er frábært útsýni, maður þarf bara aðeins að halla sééé……
Passaðu þig á því hvert þú beinir þessum boga, þú varst næstum
því bú……
Ég skal segja þér afhverju, við stöndum á bakvið þykka stálplötu.
Auðvitað er þetta sótthreinsað.
Við ættum að komast hringinn á þessu, ég er búinn að troðfylla
tankinn.
Hann er svo vel taminn, að þú getur sett höfuðið uppí munninn á
honum.
Afhverju ætti ekki að mega synda í því?
Ég þekki hann, hann er mjög öruggur bílsjóri.
Já, þú mátt formatera harða diskinn núna.
Engin hætta, þetta hljóð Á að heyrast
Já, þetta er svona 90% jarðtengt.
Asnalegt skilti, mér sýnist þessi brú vera í fínu lagi.
Nei málið er, að þeir gera bara árás ef þeir eru svangir.
Ég get nú haldið andanum niðrí mér allaveganna það lengi.
Hei, þarna eru hermenn, spyrjum þá.
Jason finnur okkur aldrei inní skápnum.
Ég þori að veðja að ég kemst ofan í þetta.
Engar áhyggjur, ég hef gert þetta milljón sinnum áður.
Nei, við þurfum ekki að spyrja til vegar, ég er með kort.
Hey, hvað ætti svo sem að geta klikkað?
Eitrað? Er ekki í lagi með þig?
Neiii, ekki aftur.
Það passaði síðast þegar ég gerði þetta.
Hvernig í ósköpunum ættum við að geta tapað á því?
Það ætti allaveganna ekki að koma að sök að prófa.
Nei ég þarf ekki leiðbeiningarnar, þetta liggur ljóst fyrir.
Við tökum bara á því máli þegar að við komum að því.
Nei, ég held að við ættum frekar að fara í sitthvoru lagi.
Við þurfum engar vistir, þetta er ekki einu sinni dagsferð.
Ísinn er öruggur.
Ég skal sjá um að tala.
Stormurinn verður í hundrað kílómetra fjarlægð … að minnsta
kosti.
Ég kem aftur, svona um hádegisleitið.
Bensín? Jájá, ég er með nóg af því.
Engar áhyggjur, það er ekki hægt að festa sig á þessum bíl.
Aha .. ég er sérfræðingur í þessu.
Nei ástin mín, fólk týnist bara í bíómyndum.
Það hlýtur einhver að finna okkur.
Hvaða vitleysa, ég fer bara á puttanum.
Óneiii … ég veit hvernig kviksyndi lítur út.
Það er grunnt hérna …