Guðmundur var með samviskubit. Alveg sama hvað hann reyndi, hann bara gat ekki gleymt þessu. Hugsanir um spillt siðgæði og brot á læknareglum voru að kæfa hann. En einstöku sinnum heyrði hann rödd í huga sér segja:

“Guðmundur, ekki hafa áhyggjur af þessu. Þú ert örugglega ekki fyrsti læknirinn sem sefur hjá einum af sjúklingum þínum, og örugglega ekki sá síðasti.”

En svo heyrðist önnur rödd innra með honum, aðeins háværari:

“En Guðmundur, þú er dýralæknir.”

Ungur læknir hafði verið fenginn til að taka við af öðrum eldri í litlu þorpi úti á landi. Sá eldri ákvað að leyfa þeim yngri að fylgjast með þegar hann fer í húsvitjanir til íbúana á staðnum.

Í fyrsta húsinu er kona með magaverk. Læknirinn segir, “Þú hefur líklega borðað yfir þig af ferskum ávöxtum. Minnkaðu aðeins magnið af þeim og þér líður örugglega betur.”

Þegar þeir fara segir sá yngri, “Þú skoðaðir ekki einu sinni konuna. Hvernig fórstu að því að finna þetta út? Og svona fljótt?”

“Ég þurfti þess ekki. Ég missti hlustunarpípuna mína, og þegar ég beygði mig eftir henn tók ég eftir hálffullri ruslatunnu af bananahýðum. Ég ályktaði bara að það væri það sem hún væri veik af.”

“Hmm,” sagði sá yngri, “ansi snjallt. Ég held að ég prófi í næsta húsi.”

Í næsta húsi er gömul kona. Þeir eyddu nokkrum mínútum í að hlusta á hana þar sem hún lýsti því hvað hún væri síþreytt. Hún kvartaði yfir orkuleysi og slappleika. Syfju og beinverkjum.
“Þú vinnur líklega of mikið fyrir kirkjuna,” segir ungi læknirinn. “Minnkaðu það og ég er viss um að þér líður betur.”

Þegar þeir eru farnir segir eldri læknirinn, “ég skil ekki hvernig þú fékkst þetta út, þetta er líklega rétt, en hvernig fattaðirðu það?”

“Nú, ég missti hlustunarpípuna mína í gólfið og þegar ég beygði mig til að ná í hana sá ég prestinn í felum undir rúminu.”

Guðmundur nokkur fer til sálfræðings. “Læknir, ég er í tómum vandræðum. Alltaf þegar ég fer að sofa, hef ég það á tilfinningunni að einhver sé undir rúminu mínu. Og ef ég leggst undir rúmið hef ég það á tilfinningunni að það sé einhver liggjandi í því. Þú verður að hjálpa mér. Ég er að verða geðveikur á þessu!”

“Ekkert mál, en þetta gæti tekið tvö til þrjú ár,” segir sálfræðingurinn. “Komdu til mín þrisvar í viku og ég lækna óttann.”

“Og hvað kostar þetta?”

“Gjaldið er 7000 kr. fyrir hvern tíma.”

“Það er hrikalega dýrt læknir,” segir Guðmundur. “Leyfðu mér að sofa á þessu, við verðum í sambandi.”

Sex vikum síðar rekst Guðmundur á sálfræðinginn. “Af hverju komstu ekki til mín aftur?” spyr sálfræðingurinn.

“Fyrir 7000 kall á heimsókn? Haa! Barþjónn læknaði mig fyrir 500 kall!”

“Hvernig fór hann að því?” spyr sálfræðingurinn.

“Hann sagði mér að saga lappirnar af rúminu!”

Listamaðurinn spyr eiganda gallerísins hvort að myndunum hans hefðu verið sýndar einhver áhugi.

“Ég er með góðar og slæmar fréttir,” svaraði eigandinn. “Góðu fréttirnar eru þær að það kom hérna maður og skoðaði myndirnar þínar. Þegar hann frétti að þær myndu hækka í verði eftir dauða þinn, þá keypti hann þær allar.”

“Það er frábært,” æpti listamaðurinn. “En slæmu fréttirnar?”

“Þetta var læknirinn þinn.”

Fimm skurðlæknar eru að ræða um það, hverjir séu nú bestu sjúklingarnir:

Sá fyrsti segir: “Það eru án efa endurskoðendur. Þú opnar þá og það er allt númerað.”

Sá næsti segir: “Já, en þú ættir þá að athuga rafvirkja. Öll líffærin eru litamerkt.”

Sá þriðji segir: “Nei, ég held að mér finnist bókasafnsverðir bestir. Þegar þeir eru opnaðir, þá blasir allt við þér í stafrófsröð.”

Sá fjórði grípur inní: “Vitið þið? Mér finnst langbest að skera upp verktaka. Þeir skilja svo vel þó að það sé eitthvað afgangs og að aðgerðin hafi tekið lengri tíma en búast mátti við.”

En sá fimmti er ekki sammála: “Þið hafið allir rangt fyrir ykkur. Það er langbest að skera upp stjórnmálamenn; ekkert hjarta, enginn kjarkur, engin samviska og það skiptir ekki máli þó að þú ruglist á rassinum og heilanum þegar þú setur þá saman!”

Þetta gerist ef heilbrigðisþjónustan verður einkavædd:
Ingibjörg Pálmadóttir er í vettvangskönnun á Landspítalanum - Háskólasjúkrahús - Fossvogi (Bogganum). Á leið sinni um gangana, heilsandi upp á sjúklinga, kemur hún að karlmanns sjúklingi, glápandi á klámmynd og að fróa sér á fullu.

“Guð minn góður!” segir Ingibjörg, “Þetta er viðbjóður, hvað meinið þið með þessu?”

Læknirinn sem er að sýna henni spítalann útskýrir, “Æ, leiðinlegt að þú skyldir verða vitni að þessu, en þessi sjúklingur er með offramleiðslu á sæði. Ef hann gerir þetta ekki fimm sinnum á dag, gæti hann dáið.”

“Nú, fyrst svo er..” segir Ingibjörg.

Á næstu hæð koma þau að hjúkrunarkonu að veita sjúklingi munnmök.

“Guð minn góður!” segir Ingibjörg, “Hvað er að gerast hér?”

“Sama vandamál, betri sjúkratrygging.”

Gummi hommi er hjá lækninum:
“Guðmundur, ég er með slæmar fréttir handa þér. Mér þykir það leitt, en þú ert með AIDS.”

Gummi fer auðvitað alveg í rusl, “Læknir, hvað…. hvað get ég gert?”

“Ég vil að þú farir heim og borðir 5 pakka af kryddpylsum, kálhaus, 20 óflysjaðar gulrætur sem hefur verið velt upp úr sterkri sósu, 10 jalapeno, 2 poka af salthnetum, 3 dósir af nýrnabaunum og svo vil ég að þú skolir þessu niður með 1 glasi af laxerolíu!”

“Og læknast ég af þessu?” spyr Gummi vongóður.

“Nei,” segir læknirinn, “en eftir þetta ættirðu að skilja betur til hvers rassgatið á þér er!”

Maður nokkur var að koma frá útlöndum, en líður hreint ekki vel. Hann fer til læknis til skoðunar, en læknirinn drífur hann beint á spítalann til frekari rannsókna.

Eftir að prófunum er lokið, vaknar maðurinn á einkastofu á sjúkrahúsinu, við að síminn hringir. Á línunni er læknirinn hans: “Við vorum að fá niðurstöðurnar úr rannsóknunum sem voru gerðar á þér. Við komumst að því að þú hefur fengið nokkur stykki af fjölónæmum sýklum, Ebólu veiruna og AIDS. Einnig ertu með sárasótt og Herpes.”

“Guð minn góður,” æpir maðurinn, “Læknir! Hvað get ég gert?”

“Við ætlum að setja þig á sérfæði. Pizzur, pönnukökur og pítubrauð.”

“Og læknast ég af því?” spyr maðurinn forvitinn.

“Nei, en þetta er eini maturinn sem við getum ýtt undir hurðina.”

Læknanemi þurfti að taka erfiðan heimspekikúrs með læknanáminu og dag einn þegar prófessorinn var að útskýra rosalega flókna speki, þá stóðst hann ekki mátið og kallaði til prófessorsins: “Af hverju þurfum við að læra þetta rugl?”

“Þetta bjargar lífum,” svaraði prófessorinn stuttaralega og heldur áfram að kenna.

Nokkrum mínútum seinna kallar sami nemandi til prófessorsins: “Hvernig bjargar heimspeki lífum?”

“Hún heldur vanalega fíflum eins og þér frá læknisfræðinni.”

Kona kemur til læknis og segir: “Læknir, ég er með einkennilegt vandamál sem mig langar að spyrja þig um.”

“Lýstu þessu fyrir mér,” segir læknirinn.

“Það væri auðveldara ef ég sýndi þér það bara,” segir hún og byrjar að klæða sig úr fötunum. Þegar hún var komin úr öllu að neðan nema nærbuxunum, settist hún á skoðunarbekkinn og færði fæturnar í sundur og sýndi lækninum litla græna hringi sem höfðu myndast innan á lærunum.

“Mér er ekkert illt í þeim eða neitt svoleiðis, en ég hef áhyggjur af þeim.”

Læknirinn skoðaði þá vandlega og sagði síðan: “Ekki getur verið að þú sért lessa?”

Vandræðaleg við þessari spurningu, komandi frá manni sem var með stækkunargler á milli lærana á henni segir hún: “Eeh, jú, reyndar. Af hverju spyrðu?”

“Ég er ansi hræddur um að þú verðir að segja kærustunni þinni að eyrnalokkarnir hennar séu ekki ekta.”

Hópur sálfræðinga er á ráðstefnu. Fjórir af þeim taka tal saman. Einn þeirra segir:

“Fólk er alltaf að koma með vandamál sín til okkar, en við getum ekki farið neitt með okkar vandamál, leyndarmál og samviskubit.” Hinir eru sammála þessu.

Þá segir einn: “Fyrst að við erum allir komnir saman, af hverju notum við ekki tímann til að létta svolítið á okkur?”

Hinir kinka kolli.

Fyrsti viðurkennir: “Mig langar stundum að drepa sjúklingana mína, ég er orðinn svo leiður á tuðinu í þeim.”

Sá næsti segir: “Ég lifi hátt svo ég finn alltaf einhverja leið til að svindla á sjúklingunum þannig að ég geti keypt það sem ég vil.”

Sá þriðji segir strax á eftir, “Ég er dópsali og ég nota sjúklingana mína til að dreifa dópi fyrir mig.”

“Alveg sama hvað ég reyni,” segir sá fjórði, “þá get ég ekki þagað yfir því sem mér er sagt…”