Frumefnið karl !! :)
Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist,
“FRUMEFNIÐ KARL”.
Frumefnið finnst: í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum
endanum á vindli eða veiðistöng. SJALDAN þó nálægt börnum.
Eðlisþyngd: 70 -140 kg. og er breiðast um miðjuna.
Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur
saman í grennd við ryksugur og gólfskrúbba,
fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður um
jafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.
Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og
tólum.
Ofsafengin viðbrögð við skorti á ummönnun og eftirtekt þ.e.
ósjálfbjarga án kvenna.
Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi
gagns að öðru leyti. (Hristist við notkun).
VARÚÐ: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki vel á verði.