Ég tek ég ekki mark á þessu dónaskap og vanvirðingu sem þið hafið útí okkur.
“Flame”
Ef þú kallar gestina hér heimskingja þá átt þú ekki að vera í stjórn. Þá ert þú að draga niður vinsældir á huga.is. Annars ertu þá að misnota vald þitt sem stjórnandi. Og þegar þú segir að það verði aldrei edit takki af því að “fávitarnir” geta misnotað það. Af hverju þarf ég og aðrir gáfaðir að sætta okkur við það líka?
Hugi er sér á báti og það verður að fara með hann þannig
Já á huga.is er mikil þvermóðska á ferð og aldrei hlustað á okkur gestina sem vilja huga.is vel.
Getur vel verið að þú hafir þroskann í Edit takka þó ég stórlega efist um það en alltof margir hafa hann ekki til að hægt sé að leyfa svona Edit takka.
Þú sagðir að ég sé einn af þeim sem hafa þroska til að nota edit takka. Af hverju er þá ekki búið að setja þá fyrir mig edit takka sem einskonar valkost? Ég get þá farið í EGÓ og hakað við “edit takka” ef ég vill nota hann.
Gefst upp bara, þú færð ekki þennan blessaða Edit takka, farðu frekar að berjast fyrir einhverju sem er möguleiki á að rætist
Ég neita að gefast upp á trúni að hér verði í framtíðinni edit takki. En ég ætla auðvitað ekkert að vera rífast við ykkur endalaust útaf þessu, fyrst að maður fær bara neikvætt svar alltaf frá ykkur.
Er ekki bara langsniðugast að fá bara notendur til að kaupa hann sem aukahlut, svona svipað og aukahlutirnir sem eru seldir á blog.central.is sér fyrir sig? Þannig að aðeins þeir sem hafa keypt aðgang að edit takkanum geta séð hann og notað hann. Þá getur þú þá að minnsta kosti haft val hvort þú vilt nota hann eða ekki. Þannig kemurðu líka í veg fyrir að sjá þennan edittakka opinberlega ef hann fer svona mikið í taugarnar á þér.
En þú ert einn af fáum sem sjá svona mikið neikvætt og ert hræddur greinilega við þetta.
Og líka, þú gagnrýnir yfirstjórn Huga fram og til baka fyrir klíkuskap og allan andskotann, ef það væri satt, heldurðu að þeim líkaði ekki svo illa við þig að þeir væru löngu búnir að henda þér í bann?
Aldrei hef ég heyrt það að ég sé að gera slíkt þó einhverjir í ykkar stjórn sé með mig á svartan lista.
Ég hef bara gagnrýnt stjórnina ykkar fyrir dónaskap og vanvirðingu á okkur garð og fyrir svona fáránlegustu og neikvæðu svör. Það eru kannski ekki margir sem þora því að slá kynnhest á ykkur og rasskella ykkur duglega fyrir dugleysi ykkar að því að þið hafið víst völdin hér en það á samt ekki að misnota það sem þið hafið reyndar gert stundum.
En þið vitið samt að ég meina ekkert illt með þessu. Mér er alls ekki illa við neinn af ykkar stjórn. Ég er bara reiður útí neikvæðni ykkar og trega við að gera eitthvað af viti hér og sinna óskum sem margir hafa beðið um. Ég tek fram að ég var ekki sá fyrsti sem bað um edit takkann. Enda sá ég ekki alveg réttu ástæðuna fyrir því fyrr en einhver fór að leiðrétta mínar klaufavillur sem er virkilega óþolandi. Þetta hefði maður komið í veg hefði ég haft tækifæri á að laga það en því miður, þá get ég það ekki vegna þvermóðskuna ykkar útí minn garð og aðra sem þið kallið fífl.
Notaðu heilann aðeins, hefur sýnt það í póstunum að þú getur það.
Ég vildi að ég gæti sagt það sama um þig en það sem þú ert ennþá í stjórninni læt ég það eiga sig hehehe.