Því segirðu að ég sé verri en IKEA ?
Nú er kominn oktober og flestar húsmæður farnar að spá í jólin.
ÞAÐ þarf að fara að huga að jólagjöfum (margir eru þegar búnir að kaupa þær), og svo er líka margt sem hægt er að fara að gera til að létta sér tímann rétt fyrir jól.
Þú kannski öðlast þann þroska einhverntímann að vera með börn og heimili og þá kannski fattarðu að það er gott að vera búin að gera sem mest til að það verði ekki allt í stressi og vitleysu síðustu dagana.
Jólin eru hátíð barnanna og þá á maður að geta verið afslappaður og njóta tímans sem allir eiga að vera í fríi.