Nei, það eru engin sérstök takmörk fyrir magni efnis sem notandi getur sent inn.
Hinsvegar er ekki mælst til þess að notendur sendi inn mjög marga þræði í einu (þe. spamma). Sem dæmi, ef þú ætlar að senda inn 10 brandara á /humor er mun betra að skrifa þá 10 saman í grein heldur en að senda inn 10 mismunandi þræði á korkinn.
Fjöldasendingar á efni á borð við myndir, kannanir og greinar eru samt allt í lagi, þar sem að stjórnendur sjá um að samþykkja það efni og geta því stjórnað flæði á því svo að hver mynd/grein/könnun fái athygli notenda áhugamálsins í skikkanlegan tíma.
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“