jújú, það væri líka gott, en upphaflega ætlaði ég að svara póstinum hérna á undan (vélsleðar/snjósleðar) en eithvað var ég ekki að hugsa og valdi nýr póstur í staðin fyrir að svara honum.
Kork á mótorsport er góð hugmynd en það væri skemmtilegra að hafa svona sér fyrir sleðana, við þurfum bara að fá að vita hvað það séu svona sirka margir sem væru til í að hafa þetta´. núna upp á síðkastið hafa nokkrir verið að spyrja um þetta, hvort að það sé ekki áhugi fyrir þessu en það virðst bara ekki vera áhugi hérna, allavega eru ekki margir sem svara póstum og svoleiðis en ef allir þessir sem eru að spyrja hvort það sé ekki áhugi á þessu myndu allir skrifa undir sama póstinn þá held ég að þeir séu nokkrir, miðað við hvað eru margir búinir að spyrja að þessu.
Verðum bara sjá hvað margir taka undir þetta, eða bara að reyna að fá allavega kork á mótorsport.
kveðja
polarisXLT.