Þetta er svo tilgangslaust, hugi hefur ekki þarfnast edit takka í þau 6 ár sem hann hefur lifað, en allt í einu núna er þetta lífsnauðsyn!?
Það eru margir fávitar hérna, let's face it- fólk sem að getur ekki hætt að brjóta reglurnar, pirra aðra- fólk er mismunandi. Sumir hafa þessa eðlisþörf að gera það. En hjálpum þeim ekki með að gefa þeim edit takka sem þeir geta fokkað öllum huga upp með. Gert alla gráhærða og helmingi meiri vinna fyrir stjórnendur að fara yfir allt sem var breytt (það er ritstýrð umræða hér náttúrulega).
Notið bæta við takkann, það drepur þig ekki að fá nokkur skilaboð “Haha, það er ”og“ ekki ”go“ idjót”, sem ég hef reyndar aldrei nokkurntíman fengið síðan ég bætti við leiðréttingunni - í stað fyrir edit takka með eina jákvæða notkun og nokkur þúsund neikvæð, sem er ekki hægt að stöðva.