Ég er ekki að segja þetta bara til að vera leiðinleg, en Lecter á við geðræn vandamál að stríða. Hann finnur ekki hjálp hérna á huga og hugi getur ekki veitt honum þá hjálp sem hann þarf. Það eina sem hann gerir er að rugla í viðkvæmum ungum sálum sem eru að þroskast með þröngsýnum skoðunum sínum á t.d. samkynhneigðum.
Hvorki Mizzeeh né Skuggi gerðu honum neitt. Það var EKKI skuggi sem hótaði því að drepa börnin hans með blásýru, því var aldrei hótað, það var bara notað sem sýnidæmi um biblíuna og hve grimm hún er á köflum. Það var verið að láta Lecter líta í sinn eigin barm og reyna að fá hann til að hugsa hvort að hann vildi fá þessa meðferð fyrir Sín börn þegar þar að kæmi. En Lecter náði að snúa út úr þessu eina litla dæmi og hefur sennilega farið með þetta til lögreglunnar eða eitthvað annað.
Ef þið viljið endilega heyra í Lecter þá skulið þið fara á bloggið hans, sama hve geðveikt það ku að vera.