Óþroskuð ?
Eruði virkilega svona óþroskuð að byrja á því að rakka allt saman niður ?.. Ekkert að því að prófa nýja hluti og óþarfi að byrja skjóta óþarflega leiðinlegum skotum á nýja vefstjórann. Ég hef ekki tölu yfir hversu oft fólk hefur kvartað yfir að Hugi.is þurfi einhverjar breytingar, svo loksins koma þær, og þið byrjið bara strax með skítköst og leiðindi. Hvernig væri að sjá aðeins hvernig hlutirnir þróast ? Alveg merkilegt hvað fólk virðist alltaf hallast að öllu því neikvæða.