Ok, svona fer maður að(eða allaveganna ég):
Hita tortilla köku í svona grill tæki, set það á diskinn og byrja svo að hlaða á: Ost, hakk, hot salsa sósu, papriku, lauk, gúrku og kál. Semsagt, setur þetta allt þvert yfir kökuna í einni línu, svo tekurðu í endana sem eru ekki með drasli á og leggur þær yfir allt gumsið. Heldur því svo saman og étur. Byrjar á öðrum endanum yfir í hinn. Ekki byrja að borða í miðjunni, það virkar illa. Svo á maður alltaf að vera með eldhúspappír og gaffal til staðar. Pappírinn til að þurrka þá á höndum og munn þegar þú ert útataður/útötuð í salsa sósu, og svo gaffalinn til að borða það sem dettur af kökkunni niður á diskinn. En til að forðast það geturðu brotið upp á endann sem þú byrjar ekki á þannig að það detti ekkert úr kökunni.
Gekk kannski full langt þarna. :/