Sæll fvs,—————————————8. Júní 2006
Ég er líka alveg rosalega ólmur í að fá þennan béskotans Edit takka, en löngunin hefur alveg dáið þegar ég hef séð attitjúdinn hjá mörgum notendum hérna. Kannski þú hefur ekki séð það en þeir myndu misnota hann óeðlilega mikið, ekki spurning. Notendur myndu fyrst byrja að kvarta yfir meiðyrðum, ærumeiðingum og jafnvel hótunum, en engin sönnunargögn. Svo myndu notendur kvarta yfir meiðyrðum, ærumeiðingum og jafnvel hótunum sem að eiga sér engin stoð, en hver veit?!
Það sem ég er að meina er það sem að Jón nefndi hér fyrir ofan, að notendurnir geta ekki axlað þá ábyrgð að taka tilbaka það sem þeir segja.
Kveðja, Song.
PS: Ég gerði “Endurskoða” og rakst í tvær innsláttarvillur og leiðrétti þær. Ekki amalegt það.