Ég reyndi í gær að skrifa leik, ég notaði “Alcohol 120%” til verksins.
Allt gekk vel og þegar þetta var komið uppí hundrað prósent þá ætlaði ég að setja leikinn upp, þá kom í ljós að diskurinn var ónýtur, hann hafði verið alveg tómur en eftir að ég skrifaði þetta á hann þá eyðilagðist hann! Leikurinn var ekki inná, þegar ég kíkti aftaná diskinn þá sá ég ekki þessa venjulegu rönd sem kemur alltaf þegar eitthvað er á disknum, en það virtist samt eins og einhver hefði átt við hann :/

Ég var að skrifa annan eins disk núna en allt kom fyrir ekki, það sama endurtók sig og núna er ég komin með tvo ónýta diska! :(

Hvað er vandamálið? Er fælinn ónýtur eða eru diskarnir gallaðir, hvað er að?

Kv, Dessy