Þannig er mál með vexti að ég fékk ekki Elko blaðið í dag, þannig að ég ætlaði bara að skoða það á netinu. Ég fer inná elko.is og reyni að finna þennan bækling en finn hann hvergi þannig að ég fer í leitarniðurstöður og skrifa blað og þá þarf ég að sækja blaðið en þá er það eitthvað eldgamalt blað, og nú er ég búinn að eyða meira en hálftíma í að sækja þessar myndir og gá að dagsetningunni en það sem ég finn er frá 2.apríl.
Þannig að spurningin er sú hvar get ég nálgast þetta blað?