Þessi tölvuveröld er raunveruleg ef að sjálfur maðurinn sem notar hana vill það. Þetta er raunverulegt fyrir mér því að ég er ekki að tala við vélar, heldur aðrar manneskjur - það að segja að þetta er óraunverulegt er eins og að segja að sími sé líka óraunverulegur því að maður sér ekki þann sem að maður er að tala við.
Ef að þér er sama, af hverju þarftu þá að svara mínu ofur tilgangslausa svari? Eða þurftir að blóta mér í sand og ösku?
Að vera þroskaður og að haga sér þroskað eru tveir mismunandi hlutir, ég ætla ekki að dæma hvað það er að haga sér þroskað né hvað það er að vera þroskaður nema mjög gróflega því ég tel mig ekki hæfan í það.
Viltu vinsamlegast hætta að kalla mig “lilli” því að bæði það er tilgangslaust og sýnir það að þú ert örvæntingarfullur fyrir því að fá yfirhöndina í þessu “rifrildi” sem að á ekki einu sinni skilið titilinn “rifrildi” því að eins og þú sagðir þá er þetta algjörlega tilgangslaust - þannig séð. Kannski er önnur ástæða fyrir því, en þetta finnst mér líklegast
Kv, Song - vill ekkert annað en frið og engin blóts- eða móðgunaryrði.