geriru ekki neitt annað en að reyna að stofna til rifrilda. það eru alltaf tvær hliðar á hverju máli og stundum fleiri. ég fer ekkert í fílu ef stigakerfið verður fellt niður og ég skil ekki hvers vegna aðrir ættu að fara í fílu yfir einhverju svonalöguðu, því mér finnst þú vera að rífast svolítið yfir þessu, ef því er alveg nákvæmlega sama um það. ég til dæmis efa það að þú hafir nokkurntíman kynnt þér kostina við að hafa stig. hugmyndin sem ég sendi inn var send inn sem hugmynd til stjórnenda huga um að á meðan stigakerfið væri þá mætti alveg skoða þann kost að gefa líka stig fyrir greinar sem eru fluttar yfir á kork, en ég var ekki að segja að stigakerfið sjálft værir svo fullkomið og óendanlega gott að það mætti alls ekki breyta því. hugmyndin mín var þá frekar til að betrumbæta kerfið ef eitthvað. og ég er farinn að sjá eftir því að hafa sent þennan kork, því að ég hef eiginlega bara þurft að vera að svara fólki sem gerir ekkert nema skamma mig og rífast í mér, þar með talinn þú. ég hef ekki fengið eina einustu jákvæðu viðbrögð og er hálf vonsvikinn. ég hef verið kallaður stigahóra, sem mér finnst viðurstiggilegt nafn og enginn ætti að vera kallaður þetta, og svo hef ég þurft að vera að útskýra sama hlutinn aftur og aftur og aftur, að ég hefði sent þessa grein inn til að gefa stjórnendum hugmynd fyrir stigakerfið. ömurlegt að vera svarað í gríð og erg sömu svörunum aftur og aftur og mér finnst þetta í raun hálf skrítið af því að maður hefði haldið að fólk gæti gert eitthvað annað en að kvarta og kveina yfir því að öðrum finnst eitthvað annað en þeir sjálfir. en hei kannski er þetta bara þitt álit og þá hef ég ekkert með að reyna að snúa um fyrir þér, en maður héldi nú samt að fólk gæti verið svolítið kurteist þó að því mislíkaði eitthvað.
Ég hef bara alltaf rétt fyrir mér, þannig er það bara.