Look, ég veit hvað goth er. Ég er bara að segja að Gothar eru tilgerðarlegir hræsnarar. Ég hef gaman ef myrkum hlutum, trúðu mér, margir af þessum “goth” hlutum sem eru taldir upp í greininni, fíla ég. Ég finn enga þörf fyrir því að klæða mig upp í búninga, enda væri það ekkert nema tilgerð.
Fyrir mér þá eru Gothar nákvæmlega eins og trekkarar eða geðveikir star wars aðdáendur. Þú getur haft gaman að ákveðnum hlutum, en um leið og þú ert farinn að klæða þig í grímubúninga þá ertu farinn yfir einhverja línu.
Ég geri engan greinarmun á gellunni í svarta leðurdressinu og Brandon Lee make-upinu, og gaurnum í Chewbacka búningnum. Þetta eru bæði hálfvitar.
Ég veit að þú ert að reyna að selja mér það að Goth sé bara “hugarástand”, en ég kaupi það bara engan veginn. Þetta er trend, og eins og öll önnur trend sem hafa verið uppi, þá er þetta aumkunarvert. Hippar, pönkarar, metalhausar, EMO-krakkar, diskópakk, eighty's-krakkar, skopparar, hnakkar, gothar. Breytir engu, þetta er allt sami skíturinn, þetta eru bara mismunandi útgáfur. Þetta eru, basicly, ekkert nema aumkunarverðar tilraunir fólks til að vera eitthvað annað en þau sjálf.