Hjálp, köttur í óskilum (það er að segja ég er með kött sem ég veit ekki hver á)
Ok, ég er með kött í óskilum, og það svara ekki í kattholti, hvað á e´g að gera? Hann er alhvítur með mislit augu (eitt og blátt og eitt grænt) og ég fann hann úti í sveit rétt fyrir utan mosfellsbæ þar sem ég var á göngu.
Hmmm…. Öhh… var kötturinn ekki bara líka á sinni útigöngu eins og flestir kettir ? Spurning hvort hann væri ekki bara kominn heim til sín núna ef þú hefðir ekki tekið hann.
tja….hann er með sár á öllum loppum. ÉG for með hann heim til mín og gaf honum að borða, og hann borðaði það eins og hakkavél. Þegar hann sá mig mjálmaði hann mjög hátt (reyndar það hæsta sem ég hef heyrt kött mjálma). Og hann gat varla gengið, eins og ég sagði áðan, út af sárunum. Og hann var í um það bil 45 min. gangi frá byggðum.
Þannig að nei, ég held að þetta hafi ekki verið saunndagsgöngutút.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..