Ætla að svara öllum sem að eru að tala/kvarta um að þeir fái svo mikið af keðjubréfum, eruð þið ekki bara með alltof marga þannig einstaklinga inná MSN sem að senda þetta áfram eins og það sé sjálfsagt? Hví ekki að taka þá út af listanum ef þetta er svona ofboðslega pirrandi, eða koma smá viti inn í hausinn á þeim? =)

En hér er spurning; Hverjir eru þetta sem að eru að senda þetta? 10 ára guttar/guttur (=p) eða gelgjur? Ekkert annað sem mér dettur í hug sem svarmöguleiki á stundinni.. (tók mig 5 mínútur, bókstaflega, að ákveða hvort ég átti að hafa einn, tvo eða þrjá punkta þarna í endanum. Mér fannst eins og þú vildir vita það.)