Fimm ára gömlum dreng var í gær nauðgað á salerni á leikvelli í Holbæk í Danmörku. Lögreglan leitar nú ódæðismannsins.
Að sögn danskra fjölmiðla uppgötvaði móðir drengsins að blóð var í nærfötum drengsins síðdegis í gær. Hún fór með drenginn á slysadeild og þá kom í ljós að honum hafði verið nauðgað í endaþarm.
Lögreglan í Holbæk segir að drengnum hafi verið misþyrmt einhvern tímann frá klukkan 9 til 15. Drengurinn er útlendur og hafa yfirheyrslur gengið hægt, bæði vegna ungs aldurs drengsins og tungumálaerfiðleika.
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1158541
Djöfulsins sjúki heimur sem við lifum í.. :/