Jæja, ég var í klandri um hvað ég mætti skíra korkinn þar sem ég veit ekki betur en að bannað sé að spyrja spuninga um DC. Þess vegna var ég að reyna að fá sem flesta venjulega notendur hingað inn áður en einhver yfiradmin kemur og lokar þessu.

Málið er að ég er búinn að googla og ég er búinn að leita á huga. Ég finn samt ekkert, ekkert, um DC.

Ég veit ekki betur en þetta DC-kerfi hafi breyst síðan ég stundaði þetta fyrir nokkrum mánuðum.

Hvað þarf ég að ná í og hvað þarf ég svo að gera til þess að geta notað forritið? Ég vil íslenskt dl.

Og áður en þú segir mér að googla þá ætla ég að benda á það í annað sinn að ég er búinn að því, fletti á síðu 30 þar áður en ég gafst upp.

Hvernig næ ég í DC og hvernig get ég notað það?