Þú þarft að gefa aðeins meiri upplýsingar en þetta til að fá svar. Þetta er svipað og að hringja á bílaverkstæði og segja ‘bíllinn fer ekki í gang, hvað er að?’.
Hvernig tölva er þetta? Ferðatölva eða borðtölva?
Hvernig ertu að tengja hana við sjónvarpið, með vga adapter eða með s-video/rca út á skjákortinu?
Hvaða skjákort ertu þá að nota?
Ef þetta er út úr skjákorti, þá þarftu að ‘kveikja á’ tv-out virkninni (og í flestum tilfellum verður s-video að vera tengt við kortið þegar þú ræsir tölvuna).
Ef þetta er út úr S-Video porti á ferðatölvu, þá þarftu að fara í display stillingar og kveikja á tv-out.
Ef þetta er úr vga adapter, þá get ég ekki hjálpað þér öðruvísi en að benda á leiðbeiningarnar sem fylgdu honum.
Undirskriftir með öðru en nafninu manns eru hallærislegar.