Er í lagi að hann sé í Kópavogi? Ég var hjá sjúkraþjálfara sem heitir Kristján og mér líkaði rosalega vel við hann. Hann sér eða sá allavega um meistaraflokk Breiðabliks. Hann vinnur á Sjúkraþjálfun Kópavogs held ég að það heiti. Fyrirtækið er til húsa í Hamraborg. Mér líkaði að minnsta kosti mjög vel við hann. Ég fór til hans þegar ég tognaði aftan í læri (hamstring)og hann sá vel um mig.