ég hef prufað þetta með frystinn en það virkar ekki. Það er eins og það frystist ekki almennilega. Svefnpokinn var þarna í 2 vikur en tyggjóið var ekki nógu fryst. Það er sammt allt í lagi með frystinn. Ég held þetta sé gerfiefninu í svefnpokanum að kenna. Ég er að spá í að kannski prófa smjörið og svo las ég um daginn að kók væri gott á þetta. Vitið þið um einhverja aðra leið?
Ef þú etr með svefnpoka sem þoli -14 stiga frost er ekki hægt að frysta hann í venjulegri frystikistu:P Þess vegna þolir hann -14 stiga frost, því að hann frýs ekki við -14 stig…
Ég lenti í svona með buxur og bara kroppaði það út. Tyggjó í hárið er ógeðslega pirrandi! Frændi minn ætlaði að vera ógeðslega fyndinn og setja tyggjó inn í eyrað á mér en af því ég er með sítt hár þá klíndi hann því í hárið og ég var drullu focking lengi að ná því úr. Held samt að það hefði jafnvel verið verra að fá það í eyrað..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..