Ef þú bara vissir hvað ég legði á mig fyrir félaga mína á huga, ég lá einu sinni á pyntingabekk í Kúalalúmpúr á meðan að úmpalúmpur nöguðu á mér tærnar og viltir naggrísir kítluðu mér á bakvið eyrun. Þetta stóð yfir í u.þ.b. þrjár vikur. Veistu af hverju? Þær vildu ólmar sleppa nokkrum fjallaþursum inn á vefinn, algjörlega bandvitlausum í þokkabót. Þetta gat ég ekki leyft þeim að gera svo að ég gaf þeim ekki upp slóðina á vefnum.
Þetta var skemmtilega fyndið, en að öllu gamni slepptu held ég að þeir hafi komist að slóðinni á einhvern annan hátt! Það er allavega mikið af thursum hérna, hvort þeir séu fjallathursar veit ég hinsvegar ekki. :o
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..