Ég fann mér annað að gera:P Svara öllu sem þú lagðir til, þannig here it goes…:
farið út í göngutúr/skokka: Nenni ekki að klæða mig!
vaska upp :P: Erum með uppþvottavél og allt nýkomið úr henni
teikna: get ekki teiknað og auk þess er það leiðinlegt
lesa: Er með hausverk
glápa á sjónvarp/video/DvD: Erum bara með ríkissjónvarpið sökum þess að við erum ekki með örbylgjulofnet og í skugga frá útsendingunni af skjá 1. Á ekki góðar spólur né dvd og nenni ekki út því þá þarf ég að klæða mig.
bara eitthvað skoðað á netinu: nákvæmlega það sem ég er að gera.
samið sögu/fanfic og leift mér svo að lesa hana 8-) :P: Get skrifað en er með hausverk eins og áður kom fram.
bakað: Góð hugmynd nema hvað það er ekki til hveiti og ég nenni ekki út í búð út af því að þá þarf ég að klæða mig sem ég nenni ekki að gera, eins og ég er búin að segja 2svar sinnum
borðað: viltu að ég fitni, eða?
tekið til: Allt tandur hreint ;) Nei, þetta er að sjálfsögðu lygi, en ég nenni ekki að taka til.
hringt í einhvern
hlustað á tónlist: Í framkvæmd…
spilað: Spilað hvað? Ég er ein heima og ég spila ekki tölvuleiki.
farið eikkert niðrí bæ ef u býrð í bænum: Ég bý niðri í bæ. Það er ekkert spennandi að fara út.
breitt herberginu þínu: Það er svo lítið að ég er búin að raða inn í það á eina hugsanlega mátann… Ekki hægt að breyta.
farið í sturtu/bað: Amm, geri það bráðlega. Bara nenni ekki að klæða mig, líður svo vel í náttfötunum.
farið í gegnum fataskápinn þinn: Ég á ekki það mikið af fötum að það taki einhvern tíma…
endur raðað öllu í hillunum hjá þér: Shit nei. Þá myndi ég aldrei finna neitt.
skipulagt allt sem þér dettur í hug: Dettur ekkert í hug.
bullað á huga: Það sem ég er að gera.
samið grein fyrir huga: Um hvað?
bloggða alveg heilan helling: - // - (endurtekningarmerkið)
farið í mynda-flipp: Á ekki myndavél.
farið í sund? Fuck nei. Þegar ég kláraði skólasundið sór ég þess dýran eyð að ekki einusinni litla táin mín myndi snerta sundlaug aftur!
fótbolta,körfubolta eða einhverja aðra íþrótt: Ég stunda ekki íþróttir.
búið til snjókarl/kerlingu/krakka/hund: Þá þyrfti ég að fara út, og þá þyrfti ég að klæða mig og ég nenni því ekki…
búa til slatt af snjóboltum og ganga í hús og bjóða fólki að kaupa til styrktar einhverju hjálparstarfi: - // - (endurtekningarmerkið)
kasta snjóboltum útí sjó/vatn (ef þú býrð nálægt sjó eða vatni): - // - (endurtekningarmerkið)
búa til líkan af einhverjum stórum flottum og flóknum byggingum(úr snjó) og fara svo að nöldra yfir því að hún bráðnaði: - // - (endurtekningarmerkið)
búa til strumpasmjör og reyna að f´aeinhvern til að borða það: Við eigum ekki smjör út af því að það borðar enginn smjör hérna. Hvernig er annars strumpasmjör?