Keyptu þér græju sem heitir SkipDR.
Það er lítið apparat sem slípar yfirborðið á plastinu jafnt yfir allan diskinn (ekki góð hugmynd að nota puttana á svoleiðis, þar sem þú getur tæknilega séð gert illt verra með því að gera diskinn ójafnan).
Hérna er slóð á síðu þar sem þú getur pantað þetta:
http://www.digitalinnovations.com/skipdr/SkipDR_motorized.htmlÞessi þarna er rafdrifinn, en það er til handknúin útgáfa sem er aðeins ódýrari og hún er fáanleg á sömu síðu.
Ég á svona og hef notað á nokkra diska (m.a. commercial disk af hugbúnaði sem kostaði tugi þúsunda og ekki hægt að fá alvöru eintak nema borga aftur) með frábærum árangri. Plastið leit ekki jafn vel út eins og áður, en diskarnir virka og það er það sem skiptir máli.