Það er nú allt gott og blessað.. enn við erum að tala um það að þessi eigendurnir eru búnir að þekkja vin minn í mörg ár því hann er fastakúnni, og hefur oft mælt með hinu og þessu efni og er ég þessvegna hissa á framkomu þeirra. Þeir voru bara ekkert á leiðinni að viðurkenna mistök sín það var það versta.. það var ekki fyrr enn vinur minn var í raun ráþrota að honum datt í hug að spurja um hvort þetta hefði ekki verið tekið uppá öryggismyndavél og svo þegar það kemur loks í ljós segja þeir bara srry og hann fær ekki einu sinni fría spólu í sárabætur.. Finnst þér ekkert loðið við þetta?