Ég er <b>OF</b> góður við ykkur rotturnar:
Við lifum aðeins einu sinni
á þessum stað í þessu skinni.
Og því er um að gera að nýta
hvert tækifæri sem best.
Það er þytur í lofti og þróttur í mér,
í þankanum strauma ég finn.
Mér segir svo hugur að allt gangi upp
og þetta sé dagurinn minn.
Með viljann að vopni og vonir
sem drífa mig áfram.
Ég lagði upp með lítið
en ég lofaði sjálfum mér því
að klára það verk sem nú hafið er
og njóta þess alveg að lifa nú og hér.
Það eiga allir sína drauma
í flestum hugarfylgsnum krauma.
Þá sem þurfa að finna farveg
og verða fljót fyrir rest.
Við lifum aðeins einu..
Það er erfitt að lýsa með orðum í raun
hve innra ég tifa og brenn.
Ég hef haldið og sleppt, hörfað og sótt,
hlegið og grátið í senn.
<br><br><font color=“#FF3399”>Kveðja,
Hrannar Már.
<b>Hefur þú verið slegin(n) í andlitið fyrir að tala of mikið?</b></font