þetta voru 3 gaurar mjög svo athyglissjúkir og ofvirkir. Allavega veit ég að einn af þeim lék þarna í gemsum, myndinni. Þeir voru með geggjaða karlrembustæla, tjáðu sig um að það að þeir væru alkar og konur væru til einskins nýtar. Þær ættu bara að halda kjafti og koma með bjórinn.
Allavega voru 2 gauranir frekar dónalegir en einn af þeim(þessi í miðjunni) var skástur og var alveg að vanda sig að svara meðan hinir sögðu bara eikkað dónalegt rugl.
Og gellan sem var að spurja hún vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið en mér fannst hún standa sig vel miðað við þessa klikk*** gæja…(hún bjóst ekkert við þessu)
Allavega svo í miðjum þættinum þá tók bara einn gæjinn upp pela (væntanlega með áfengi í) og hellti í vatnsglösin þeirra, bara voða gaman!! Þeir voru greinilega ekkert alveg að meika þennan þátt sovna edrú..(miðað við hvernig þeir létu gæti ég best trúað að þeir hefðu verið búnir að drekka eikkað úr þessum pela FYRIR þáttinn, annars veit maður ekki..)
Svo voru bara mikil læti í salnum, einhverjar gelgjur sem hlógu meira en allt og það heyrðist varla hvaða stelpan var að spurja og hvað þá svörin hjá strákunum…hún þurfti líka að sleppa nokkrum spurningum því þau voru að falla á tíma…
Síðan valdi hún gæjann sem sat lengst til vinstri, hann var alger sprelligosi með einhverja skikkju á öxlunum og lét einsog fífl en ég hafði nú lúmskt gaman af þessu..
Það var hann sem sagði að konur ættu að halda kjafti og koma með bjórinn.
En líka gaurinn sem sat lengst til hægri hann var allaf eikkað að kalla útí sal til stelpnanna sem voru með gelgjustæla, hann kallaði t.d. mellur!!! og eikkað svona ..
Svo líka þegar kom að því að þeir sem ekki voru valdir fengu að sjá gelluna(og þetta var bara mjög sæt stelpa) þá sagði þessi sami gaur(sem lék í gemsum) : Hún er hvorteder fokkin ljót!!!
beint upp í opið geðið á henni..
Semsagt nú er ég búin að segja það sem ég man en þetta var nú doltið vafasamur þáttur verð ég að segja og hefur örugglega farið fyrir brjóstið á einhverjum húsmæðrum í vesturbænum….
En samt ætti alveg að endursýna hann!!!!
kv.*MEY*
p.s. ég vona(og held) að þetta hafi ekkert verið of gróf frásögn…)