Halastjarna á himni
Þessa dagana er halastjarna sýnileg á kvöldhimninum. Hún er ekki mjög björt (birtustig 3-4) en sést þó með berum augum og auðveldlega í handsjónauka. Á dimmum himni sést greinilega hali sem er 1-2 gráður á lengd, en glöggir athugendur segja hann vera mun lengri.
Halastjarna þessi heitir C/2002 C1 eða Ikeya-Zhang eftir þeim sem fundu hana hinn 1. febrúar 2002. Reyndar voru það þrír áhugamenn sem komu auga á hana sama kvöldið. Fyrstur var Japaninn Kaoru Ikeya, síðan Kínverjinn Daqing Zhang og loks Brasilíumaðurinn Paulo Raymundo. Nánari upplýsingar um fundinn, svo og myndir af halastjörnunni, er að finna á vefsíðu Gary W. Kronk sem er mikill áhugamaður um halastjörnur og hefur gefið út bók um það efni. Ikeya er þekktur vegna annarrar halastjörnu sem hann fann og við hann er kennd. Það var halastjarnan Ikeya-Seki sem sást árið 1965 og var einhver sú bjartasta sem um getur. Hún sást greinilega um hábjartan dag.
Braut hinnar nýfundnu halastjörnu líkist mjög braut halastjörnu sem sást árið 1661, og hugsanlega hefur hún líka sést árin 1277 og 877. Útreikningar benda til þess að umferðartími hennar um sólu sé 367 ár (umferðartíminn getur breyst vegna truflana frá reikistjörnunum). Hafi þessi halastjarna sést áður, hefur hún lengstan umferðartíma þeirra halastjarna sem sést hafa oftar en einu sinni og heimildir eru um. Fyrra metið var 155 ár.
Halastjarnan var næst sólu 18. mars, helmingi nær sólu en jörðin. Fjarlægð hennar frá jörð var þá 0.8 stjarnfræðieiningar (120 milljón km). Halastjarnan er nú í fiskamerki á norðurleið og gengur í stjörnumerkið Andrómedu í mánaðarlok. Hún hækkar því stöðugt á lofti frá Íslandi séð. Á móti því kemur að tungl fer vaxandi og lýsir upp himin þannig að erfiðara verður að sjá daufan halann. Tungl er fullt 28. mars, en eftir 30. mars kemur það svo seint upp að það hindrar ekki athuganir. Reiknað er með að birta halastjörnunnar verði í hámarki kringum 25. mars en fari síðan minnkandi. Slíkum útreikningum ber þó að taka með fyrirvara því að erfitt er að spá fyrir um hegðun halastjarna.
Átt og hæð halastjörnunnar séð frá Reykjavík á næstu vikum verður sem hér segir:
Dagsetning Kl. 21 Kl. 22 Kl. 23 Kl. 24 Kl. 01
19. mars V 19° VNV 13° NV 7° NV 2°
26.mars VNV 24° VNV 18° NV 13° NNV 9° NNV 6°
2. apríl NV 22° NNV 18° NNV 16° N 14°
9. apríl NNV 27° NNV 24° N 23° N 23°
Athuga ber að dagsetningin á við tímana frá kl. 21 til 24. Í aftasta dálkinum er komin ný dagsetning.
Þeir sem búa utan Reykjavíkur geta stuðst við þessa sömu töflu því að munurinn er ekki ýkja mikill milli landshluta.
Snævarr Guðmundsson tók þessa mynd af halastjörnunni að kvöldi 18. mars. Sá hluti halans sem sést á myndinni er um 1,5 milljón km að lengd, en daufari slæða nær mun lengra út í geiminn. Myndin er tekin með stjörnusjónauka sem er 30 cm í þvermál.