Take a walk on the wild side =)
Christian Ziege að fá morðhótanir...
Christian Ziege fyrrum leikmaður Middlesbrough og núverandi leikmaður Liverpool hefur verið að fá morðhótanir frá Middlesbrough aðdáendum, hús hans hefur einnig verið dritað út í mygluðum eggjum. Þvílíkt og annað eins!!! þessar andskotans fótboltabullur hætta aldrei með þessi fíflalæti og barnaskap. Það stóð greinilega í samningnum hans Ziege við Middlesbrough að ef að eitthvert lið skyldi bjóða í hann 5.5 milljónir punda að þá gæti Middlesbrough ekki neitað tilboðinu og mætti Ziege hefja samningsviðræður við liðið sem byði í hann og fara til liðsins ef hann vildi. What is the world coming to þegar að menn mega ekki skipta um fótboltafélög án þess að fá morðhótanir og húsið sitt útatað í mygluðum eggjum. Þessar bresku fótboltabullur setja svo slæmt orð á England að heimsmeistarakeppnin mun sennilegast ekki vera haldin þar oftar útaf breskum ösnum sem mæta bara á leiki og berja alla sem halda ekki með sama liðinu og þeir og síðan endar alltaf allt með ósköpum!