Myhateisyourpain er einfaldlega að fylgja settum reglum og viðurkenndum vinnuaðferðum. Ef þú hefur eitthvað út á starf hans að setja þá máttu hafa samband við mig, vefstjóra eða aðra yfirstjórnendur í gegnum tölvupóst.
Svo vil ég minna þig á að öllum er frjálst að segja sína skoðun á hinum og þessum málum, svo lengi sem það er gert í samræmi við gildandi reglur. Þetta gildir að sjálfsögðu líka um þig, en finnst mér að þú mættir skila skoðunum þínum frá þér á ‘rólegri’ nótum.
Á meðan svar Hyrsteriu var ekki svo gróft, þá stangast það á við þau gildi sem stjórnendur áhugamálsins ákveða að stjórna eftir. Þessvegna átti þessi viðvörun alveg rétt á sér. Hysteria veit alveg að hún braut af sér og þarf því ekki að þræta um það meir.
Kveðja, Steini