Þó svo að hún sé bara með eina sjtörnu, þá þarf þetta flúr ekki að vera neitt tilgangslausara en eitthvað af hinum milljón tattúunum sem eru send hérna inn.
það sem ég átti við að fólk ætti frekar að fá sér eitthvað sem hefur einhverja þýðingu fyrir sjálft sig, öll svona tattú með td nafninu sínu á rúnum eða STJÖRNUM eru fyrir fólk sem dettur ekki rassgat í hug og er bara að fá sér tattú til að fá sér tattú.
Ef ég er með mynd sem mér finnst ógeðslega falleg, en kemur engum við (engum ástvinum), og hefur enga merkingu í lífi mínu fyrir utan það að ég elska þessa mynd, og ætla að láta tattúvera hana á mig, er það þá heimskulegt?
Ef svar þitt er já hef ég fengið staðfestingu á fávitahátt þínum.
það er alveg hægt að finnast myndir flottar, af uppáhaldsbandinu sínu fx en kommon það elskar enginn stjörnur. plús að ef maður elskar mynd þá hefur hún væntanlega þýðingu fyrir mann, rétt? en hver hefur sína hentisemi, mér finnst stjörnutattú amk ekki flott
víst, ef maður setur mynd á huga er maður væntanlega að leitast eftir skoðunum annarra, hvort einhverjum finnist þetta ljótt eða flott og ég er bara að segja hvað mér finnst.. ef fólk vill ekki álit setur það bara myndina sína í myndaalbúm eða eitthvað.
Þú hefur fullan rétt á að segja “oj þetta er ógeðslega ljótt”, en að segja að tattúið sé tilgangslaust og heimskulegt því það hefur enga “merkingu” sýnir einungis hversu fáfróður þú ert.
ÞETTA ER TILGANGLAUST SHIT MAÐUR hættu að grenja, hvað er þetta dóttir Þín eða? ég er ekki fáfróð þó mér finnist þetta heimskulegt þetta er MÍN SKOÐUUUUUUUN og farðu í rassgat
Jájá, öruglega sætt þegar maður er 14 ára… þetta er svo lítið að ég veit ekki hvort þú munir sjá eftir þessu. En mér finnst það furðulegt að foreldrar 14 ára barns leyfi því að fá tattoo…..
Ég sé ekkert að því að foreldrar hennar leyfi henni þetta. Þetta er lítið og saklaust.
En hinsvegar skil ég ekki hvað fólk er alltaf að nota þetta sem rök gegn því að fá sér húðflúr eða bara gera þetta eða hitt yfir höfuð, að sjá eftir því seinna… ég meina þú lifir einu sinni enjoy it while you can.
Já, en ef manneskjan hér að ofan hefur rétt fyrir sér, þá er þessi stelpa fjórtán ára. Djöfull yrði ég fúll við foreldra mína ef þeir leyfðu mér að fá mér counter strike, tribal eða linkin park tattú þegar ég var fjórtán ára.
Og þessi litla stjarna er það lítil að það er auðvelt að fela hana, líka á þannig stað.
Ég er ekki að segja að fólk ætti að leyfa börnunum sínum að fara að fá sér full body tattoo eða covera allt bakið, eða sleeves eða e-ð álíka en e-ð svona lítið og saklaust breytir ekki neinu.
eruði að grinast eða 1.hun fekk þetta tattoo þvi eg fekk mer tattoo og hun matti fa eitt litið i leiðinni 2.hun valdi þessa stjörnu a þessum stað þvi þegar hun verður eldri ættlar hun að fa ser stæri a herðablaðið 3.etta diss hja ykkur er sad 4.ég elska þig sibba min <3
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..