Já, hann er pottþétt að þessu bara 24/7 eins og hann sé á launum við það. Þér dettur ekkert í hug að þetta hafi verið flipp fyrir myndatökuna? Fullt af fólki sem gerir það öðru hvoru, þú ættir að kynna þér það.
Og hættu svo þesu bulli að það sé uppeldinu að kenna að hann hafi áhuga á mods. Það er ekki lélegu uppeldi að kenna að ég sé með t.d. klofna tungu, 10 flúr, 15 göt og langi í implants. Það er einfaldlega vegna þess að ég hef áhuga á þessum lífsstíl, rétt eins og Pauly Unstoppable. Að halda því fram að það sé uppeldinu að kenna er hreinn og beinn dónaskapur og það segir meira um uppeldi þitt að þú sért með svona ásakanir. Og já, gen hafa ekkert með áhuga á moddun að gera.