Algjörlega krossþroskaheft. (mitt persónulega álit)
Sem kvikmyndaáhugamaður mæli ég með því að þú íhugir betur þessa kvikmynd og hvaða skilaboð eða merkingu flúrið þitt á að hafa.
Jú, þetta er vissulega svalt. Og kvikmyndin var það vissulega líka, en hún fór því miður ekki dýpra en það.
Það væri aldrei réttlætanlegt að ákveðnir menn gætu ákveðið hverjir ættu að lifa eða deyja, og svo eru þeir að gera þetta fyrir trú sína sem er arfleifð af alda löngum heilaþætti.
Þú gætir alveg eins tattúað Osama Bin Laden á bakið á þér. Hann stendur víst fyrir því að hafa drepið talsvert fleiri en þessir guttar. Og hann gerði það fyrir trú sína. Fórnarlömbin áttu vissulega skilið að deyja í hans augum.
Eini munurinn er að við og okkar siðferði værum ekki sammála honum, enda komum við ekki frá sama samfélagi.