Hahaha, tilviljun, var einmitt að sjá gaur í ræktinni í gær sem var með hroðalegt flúr af smábarni á bringunni sinni - ég og félagi minn flissuðum vel yfir því. (vorum ekki frá því að sami gaur hafi verið með flúrað andlitið af sjálfum sér á handlegginn sinn, eða allaveganna einhverjum mjög líkum sjálfum sér, svona eins og einhverskonar vörn gegn því að gleyma hvernig hann liti út).
Ég meina, boðskapurinn er ekki slæmur hérna en það eru svo óendanlega margar betri leiðir til að heiðra barnið þitt en að festa einhverja staðlaða blekmynd af því á líkamann þinn. Myndir af fjölskyldumeðlimum eiga heima upp á hillu og þeim á svo að fjölga eftir því sem viðkomandi manneskjur eldast og breytast, nema að þú ætlir að breyta líkama þínum í einverskonar myndaalbúm þá á þetta eftir að verða svolítið kjánalegt til lengri tíma.
Ekki að það sé hægt að gera eitthvað í því núna, what's done is done, þetta eru bara mín tvö cent.