Nei nei nei.
Hún er að sýna gat, alveg eins og hinir tugir fólks sem sýna á sér sleevið eru að sýna tattoo en ekki handlegginn. Og þó hún vilji líka fá lof fyrir fallegar línur hví ekki að hrósa og leyfa fólki að líða vel í staðinn fyrir að rakka það niður fyrir að vilja fá jákvæða athygli, kannski eitthvað sem það fær ekki nóg af.
Hún er með flott naflagat, og líka flottan maga. Það er plús, ekki mínus, og hún á það skilið að fá að heyra það sama hvort það sé Jón út í bæ sem slær hana þeim gullhömrum.
Fólk mætti fara að tileinka sér jákvæðan hugsunarhátt og beita uppbyggjandi gagnrýni, hér og allstaðar annars staðar.