Tribal er stíll fyrir sig.
Ég veit. Stíll sem ég fíla ekki yfirhöfuð. Þó svo að auðvitað leynast flott tribal tattú inn á milli, þá virðist mér meirihlutinn vera eins og eitthvað tískufyrirbrigði sem var í hámarki kringum aldamótin.
Ég get svosem sagt að víkíngatattú séu bara til að vera ‘'in’'? Ég meina, hellingur af fólki með víkíngartattú.
Jújú, að vissu leiti eru þau tískufyrirbrigði, en tribal tattú eru hinsvegar mun algengari, eða að minnsta kosti meira áberandi en víkingatattú. Og ég held að þegar Íslendingar sem fá sér víkingatattú séu að því frekar til þess að heiðra forfeður sína og sögu, frekar en að vera í tísku. Aftur á móti veit ég ekki til þess að Íslendingar séu tengdir tribal táknum, svo að mér finnst þessir stílar ekki beint vera sambærilegir, ef þú skilur hvað ég meina.
Einnig færðu þér ekki gat á einn einasta stað bara af því þér finnst svo þægilegt og merkilegt að vera með stál í gegnum skinnið á þér, heldur til þess að prýða líkamann.
Satt.
Mér persónulega finnst Tribal vera mjög flott til þess að prýða líkamann, enda er ég með Tribal tattú sjálfur sem ég
hef unnið mikið að og endurgert með honum Vincent.
Ég get alveg tekið undir það að tribal
getur verið flott, en eins og ég sagði áðan, mér virðist sem tribal tattú eigi það til að vera bara eitthvað random dæmi sem fólk fær sér, í staðinn fyrir að vera kannski að pæla í því eins og þú gerir.
Ég skal viðurkenna að lítil tribal tattú á hálsinum eða forhandleggnum séu whack, enda prýða þau engann veginn líkamann og meginmarkmið Tribal að mínu mati er að Tribal flúrið á að fylgja líkamanum og ‘'flowa’' með honum.
Enn og aftur er ég sammála þér. Mér finnst tribal vera þannig að fólk fær sér þau til þess eins að vera með tattú, pælir ekker meira í þeim, eins og þú ert að gera. Þannig að oft lítur þetta út bara eins og einhver sem hefur bara skellt þessu einhversstaðar á sig, án þess að pæla í því hvort þetta væri tattú sem hentaði staðsetningunni. mér þykir þetta til dæmis alls ekki slæmt, þar sem þetta er greinilega hannað fyrir öxl:
http://www.tattoodesigner.net/uploads/1136249665_shouldercap-tribal.jpgog nei, þetta kenndi mér ekkert um tribal, þetta útskýrði þína skoðun á tribal.