Mikið rosalega leiðist mér fólk eins og þú sem getur ekki hundskast til að sýna öðrum þá lágmarkskurteisi að virða val þeirra um t.d. hvernig þeir vilja líta út.
Til að svara þessari fáránlegu fullyrðingu þinni, þá tel ég mjög ólíklegt að ég eigi eftir að sjá eftir þessu þar sem ég var búinn að hugsa um þetta mjög lengi áður en ég tók ákvörðun um að gera þetta, og ég tók ákvörðunina ca 9 mánuðum áður en þetta var gert, svo að ég var mjög ákveðinn.
Að lokum vilja mæla með því að þú sýnir öðrum kurteisi og sért ekki að drulla yfir annað fólk því það lítur ekki eins út og þú eða það sem flestir telja “venjulegt”. Fólk er ekki minni manneskjur þó að það sé “öðruvísi” en allir hinir og á skilið alveg sömu virðingu!