Merkið hægra megin er kínverkst og merkir “Heaven”, fékk mér það því ég trúi á “himnaríki” en er samt ekki trúaður á neinn hátt.
Merkið vinstra megin er rúna og þýðir bara “X”, hef samt ekki fengið það staðfest neinstaðar, hugmyndin á bakvið það var að ég drakk hvorki né reykti á þeim tíma (er reyndar reyklaus enn í dag) og þetta var svona hugdetta gagnvart “straight X” æðinu sem var þá í gangi.
Af hverju fékk ég mér SiGN tattoo? Það er í fyrsta lagi vegna þess að SiGN er uppáhalds íslenska bandið mitt, í öðru lagi því “Thank god for silence” er ein af betri plötum sem ég hef heyrt og í 3ja lagi er þetta flottasta plötualbúm sem ég hef séð.
Merkið neðst til vinsti? Það er reyndar soldið fyndið að segja frá því, málið var að ég lofaði að ef Lordi myndu sigra Júróvision árið 2006 þá myndi ég fá mér Lordi húðflúr og þetta er semsé merkið þeirra, merki útgáfufyrirtækis þeirra og aðalmerki Mr. Lordi, ef ég veit ekki betur.