Hinn 38 ára gamli Alan Jenkins frá Wales nagar sig eflaust í handarbökin eftir að hann lét húðflúra andlitsmyndir af eiginkonu sinni og tveimur dætrum, 15 og 10 ára, í raunstærð á bakið á sér. Ástæðan fyrir því að hann ætti að sjá eftir því er ekki bara sú að verkið tók tæpan sólarhring og kostaði hann um 150 þúsund krónur, heldur fór það svo að konan hans yfirgaf hann fyrir ungan austur-evrópskan strák aðeins nokkrum mánuðum eftir að myndin var komin á bakið.
Alan sagði að hann hefði lagst undir nálina til þess að fagna því að 15 ár voru frá því að hann og konan, Lisa Crooks, gengu í það heilaga. Átti húðflúrið að vera tákn um að ást þeirra myndi vara að eilífu. Blekið var varla þornað á bakinu á honum þegar hann komst að því að Lisa átti í leynilegu ástarsambandi með 25 ára gömlum náunga frá Lettandi, manni að nafni Kaspars Gavars sem starfar sem einkaþjálfari.
Alan var skiljanlega miður sín yfir öllu saman, enda ár og öld síðan nokkur maður hefur verið hafður að eins miklu fífli. „Hún verður á bakinu á mér að eilífu, þökk sé húðflúrinu. Myndin verður þarna um alla tíð, jafnvel þótt ég hitti einhverja nýja,“ sagði Alan miður sín í götublaðinu The Sun í gær, en bætti við: „Það er ennþá pláss á bringunni á mér ef það fer svo að ég byrja með annarri konu.”
Lisa kveðst vera meðvituð um fáránleika málsins. „Ég vildi aldrei að Alan húðflúraði andlitið á mér á bakið sitt. Það var ekki mín hugmynd,“ sagði hún og kom svo með vægast sagt góða útskýringu á sviksemi sinni. „Ég ætlaði aldrei að verða ástfangin af Kaspars. Það bara gerðist.” Hún er nú að bíða eftir því að Alan flytji út úr húsinu sínu svo að Kaspars, sem sést með Lisu á myndinni lengst til hægri, geti flutt inn til hennar og dætranna.
Já þetta getur bara ekki verið gaman.. Þannig að skilaboðin eru þessi, ekki tattoovera nöfn eða andlitsmyndir af öðrum á ykkur. Það getur allt gerst ;)